top of page
Writer's pictureFrosti Jónsson

Langtímahugsun í markaðsstarfi

Updated: Apr 24, 2023

Það reynir á fyrirtæki þegar aðstæður í efnahagslífi breytast til hins verra. Fyrirtæki stóðu frammi fyrir mikilli óvissu og áskorunum í kjölfar Covid-19 faraldursins og alls ekki ljóst hver áhrifin yrðu til skemmri eða lengri tíma litið.


Rannsóknir benda til þess að fyrirtæki sem hafa sinnt uppbyggingu vörumerkja til langs tíma, skapað vörumerkjum nauðsynlega vitund og ímynd, komast betur í gegnum skakkaföll í efnahagslífinu en fyrirtæki sem hafa haft skammtímahugsun að leiðarljósi. Vörumerki sem skara fram úr í að uppfylla þarfir viðskiptavina reiðir einfaldlega betur af í niðursveiflum og eru fljótari að ná sér á strik þegar niðursveiflu líkur. Ávöxtur samfelldrar vinnu og fjárfestingar skilar sér til langstíma og sérstaklega á tímum þegar kreppir að. Þegar talað er um kreppu þá er ágætt að halda því til haga að ef samdráttur í landsframleiðslu er neikvæður tvo ársfjórðunga í röð er gjarnan talað um niðursveiflu (recession) en vari niðursveiflan lengur (og samdráttur í landsframleiðslu verður meiri) er talað um kreppu.


Þegar harðnar á dalnum eru fyrstu viðbrögð stjórnenda gjarnan að skera niður kostnað eins hratt og hægt er til að bregðast við minkandi tekjum. Rannsóknir benda til þess að það að skera niður kostnað eitt og sér skili sjaldan tilætluðum árangri til langs tíma litið og hafi hamlandi áhrif á getu fyrirtækja til að takast á við samkeppni þegar aðstæður breytast til hins betra. Hætta á spekileka eykst (missa dýrmæta þekkingu úr fyrirtækinu) og fókusinn snýst umfram allt um að spara krónur til skamms tíma fremur en að þjóna viðskiptavinum fyrirtækisins betur með hagkvæmari hætti til langs tíma. Viðskiptavinamiðað markaðsstarf skilar alltaf árangri til lengri tíma litið.


Meira verslað á netinu

Meðal þeirra áskorana sem fyrirtæki stóðu frammi fyrir í Covid faraldrinum var að tryggja viðskiptavinum aðgengi að vörum og þjónustu á sama tíma og opnunartími verslana var takmarkaður, fyrirtækjum lokað og mælst er til þess að fólk haldi sig í skynsamlegri fjarlægt frá hvort öðru (social distancing). Eftirspurn eftir vörum var engu að síður til staðar en það reyndi á að koma þeim í hendurnar á viðskiptavinum. Við sáum merki þessa í tölum frá viðskiptavinum okkar í upphafi Covid faraldursins. Gríðarleg aukning í netverslun milli mánaða hjá sumum viðskiptavina var dæmi um breytingar og aðlögunarhæfni neytenda. Það sem áður var keypt útí búð, var keypt á netinu og sent heim. Samanburður milli mánaða bar þess skýr merki hjá sumum viðskiptavinum:


• Fjöldi kaupa (purchases) jókst um 50-150%, mismunandi eftir vöruflokkum

• Fólk verslarði oftar á netinu en fyrir lægri upphæðir í hvert skipti.

• Heildarvelta í netsölu jókst um 80-100% milli mánaða


Með öðrum orðum þá verslaði fleira fólk á netinu (fjöldi), það verslaði oftar (kauptíðni) en fyrir lægri upphæðir í hvert skipti (meðal andvirði kaupa).


Fjölmiðlanotkun og árangur auglýsinga

Fjölmiðlanotkun jókst í kjölfar kóróna veirunnar. Áhorf á fréttatíma sjónvarps jókst, útvarpshlustun var meiri og daglegum notendum netfréttamiðla fjölgaði. Tölur um árangur vefauglýsinga (vefborða) og auglýsinga á leitarvélum virðist haldast í hendur við aukna netnotkun, a.m.k. til skamms tíma litið. Svörun við auglýsingum á leitarvélum margfaldaðis í einhverjum tilvikum og sölur (conversions) sem rekja mátti til auglýsinga jókst 50-100% milli mánaða, þó mismunandi eftir því hvar okkur bar niður. Það sama átti við um svörun við vefauglýsingum. Þetta er áhugavert í ljósi þeirrar erfiðu stöðu sem mörg fyrirtæki eru í. 


Mismunandi staða fyrirtækja

Fyrirtæki sem hafa innleitt vefverslun sem hluta af þjónustu við viðskiptavini sína og tryggt dreifileiðir til að koma vörunum til viðskiptavina sinna eru augljóslega betur í stakk búin að takast á við breyttar aðstæður í netverslun en fyrirtæki sem ekki hafa sett slíka innviði í forgang. Og þau fyrirtæki sem ekki hafa innleitt vefverslun sem hluta af viðskiptamódeli sínu og hyggjast gera það þegar eftirspurnin eykst snögglega, standa að sama skapi mun verr að vígi en keppinautar sem hafa gert slíkt og eru komin með reynslu og þekking uá því hvernig best er að standa að málum þegar kemur að sölu á netinu og afhendingu á vörum.


Óvissutímar eins og þeir sem fylgdu Covid faraldrinum afhjúpa gjarnan veikleika í starfsemi fyrirtækja og getu þeirra til að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna þegar aðstæðir breytast. Reynsla fyrirtækja í Covid ætti að geta gefið skýrari mynd af því hvar og hverju þarf að forgangsraða með hagsmuni viðskiptavina og starfsfólks að leiðarljósi.


Heimildir

27 views0 comments

Recent Posts

See All

Commentaires


bottom of page